Fallandi stórveldi
16.08.2008 21:54:47 / eysteinn

God bless all of us!!



UMFB dugir jafntefli gegn 06. apríl til að tryggja sér Malarvinnslubikarinn 2008. Liðin mætast á Seyðisfirði í lokaumferð keppninnar. Dynamó Höfn hefur skráð sig úr leik.

UÍA fékk í dag staðfestingu frá Hornfirðingum á að þeir væru hættir þátttöku. „Það er búið að vera þétt prógramm hjá mfl. karla hér á Höfn ásamt 3.flokk kk en mikið af þeim leikmönum spila með Dýnamó, einnig er fólk farið að flykkjast aftur í bæinn í skóla. Við viljum bara biðjast afsökunar á þessu hjá okkur, þar sem við vildum auðvitað aldrei að þetta myndi gerast,“ segi í tilkynningu Dynamó. Liðið hafði lokið fimm leikjum af níu sem áttu að hafa verið leiknir og erfiðlega gekk að ná í forsvarsmenn liðsins.

R.I.P




» 34 hafa sagt sína skoðun

09.08.2008 12:00:20 / Siggi á Stapa

Dýnamó Höfn - 06. apríl = FRESTAÐ!!!

Enn eina ferðina hefur þessum leik verið frestað.  Ástæðan er sú að Seyðfirðingar ná ekki í lið.  Nánari útskýringar á því má sjá hér.

Það skal þó áréttað að við eigum leik á morgun klukkan 18:00 á Neskaupsstað og ég vonast eftir góðri mætingu þangað.  Miðað við þá 266 kílómetra sem eru þangað, reikna ég með að við ættum að leggja af stað í síðasta lagi klukkan 14:00 frá íþróttahúsinu, en helst fyrr.

» 25 hafa sagt sína skoðun

07.08.2008 12:08:09 / Jói B

2 leikir framundan um helgina!

Já við eigum 2 leiki um helgina. Við byrjum á því að taka á móti 06.April á Mánavelli næsta föstudag kl 20:00. Síðan eigum við leik við BN á Neskaupstað á næsta sunnudag kl 18:00. Ég vonast til að sjá sem flesta í þessum leikjum því ég held að það sé kominn tími á að breyta aðeins til og vinna svona eins og einn leik.

» 22 hafa sagt sína skoðun

13.07.2008 08:57:16 / Jói B

Leikur

Mætum út í íþróttahús svona hálf 3 - korter í 3 og drífum okkur af stað eftir það! Allir að mæta með smá pening í bensín veit ekki alveg hvað það er mikið á mann

» 25 hafa sagt sína skoðun

09.07.2008 21:13:48 / Jói B

Svona er staðan

Sælir félagar vildi bara henda inn stöðunni og segja nokkur orð.

Leikur 1:
KR - Höllinn
Staða: 5-2
Mörk: Bennig og Benni(en hann man nú ekkert eftir því)
Um leikinn:
Slappur leikur hjá okkur, vorum ekki að spila og létm þá skora alltof easy. Áttum góðar 15mín í byrjun seinni hálf... og þá komu okkar mörk, þá vorum við að láta boltan ganga og þeir áttu ekki mikið í okkur. Nenni nú ekkert að segja meira um þennan leik.

Leikur2:
BN - Mánavöllur
Staða: 3-2
Mörk: Haukur, Atli - víti, Atli
Um leikinn:
Hefðum átt að vinna þetta stærra. Vorum svosem að spila ágætlega en það verður líka að taka það inn í reikninginn að leikurinn var spilaður sunnudagin á Humarhátið og menn í misjöfnu ástandi.

Staðann:

Knattspyrnufélag Reyðarfjarðar  14  UÍA bikar      Höllin  Go Visit! 
06. apríl  UÍA bikar      Seyðisfjörður  Go Visit! 
UMFB  UÍA bikar      Borgarfjörður  Go Visit! 
UMF Þristur  10  12  -2  UÍA bikar      Fellavöllur  Go Visit! 
Dynamó Höfn  -2  UÍA bikar      Mánavöllur  Go Visit! 
BN 96  10  -5  UÍA bikar      Aggavagga  Go Visit! 

Eins og þið sjáið þá erum við næst neðstir eins og staðan er núna en ef þið skoðið þeta vel erum þetta nú ekki merkilegt þar sem það eru greinilega allir að vinna alla og við erum aðeins þrem stigum á eftir efsta liðinu enda eigum við tvo leiki til góða.
Næsti leikur hjá okkur er á næsta sunnudag og verður hann spilaður á Fellavelli í Fellabæ en þar munum við mæta Þristarmönnum. Við erum strax farnir að skoða hópinn og erum byrjaðir að tala við menn. Síðan þarf að fara skoða hvenær við komumst austur á Seyðistfjörð að spila gegn 06.April.
Ég hef nú ekkert meira að segja nema að þeir sem hafa tíma og áhuga á því að koma með um helgina mega endilega commenta hér fyrir neðan eða bjalla í mig eða Siffa.

» 1 hafa sagt sína skoðun

08.07.2008 17:18:43 / Siffi Dúdda

Æfing!!

Æfing í mánagarði kl 20:30!! Allir að mæta!!

» 0 hafa sagt sína skoðun

06.07.2008 14:37:14 / Jói B

Dýnamó - BN

Jæja drengir þá er loksins komið að leik hjá okkur en BN menn ætla að mæta okkur á Mánavelli í dag kl 18:00 og er þetta fyrsti heimaleikur ársins hjá okkur. Við hringjum í menn í dag en samt er fólki velkomið að koma það er bara spurning hversu mikið það fær að spila. Einnig væri frábært ef menn gætu séð sér fært um að mæta og hjálpað til við það að mála völlinn í dag milli svona hálf 4 og 6....

» 30 hafa sagt sína skoðun

29.06.2008 23:32:00 / Jói B

Leikur gegn 06.April

Strákar hvenær eigum við að reyna fara austur og spila á móti 06.April ? Það verður helst að gerast í næstu viku þannig mér finnst miðvikudagur henta best ? Endilega commentið á þetta og segið hvað ykkur finnst, hverjir komast eða vilja fara og hverjir geta keyrt.

» 5 hafa sagt sína skoðun

28.06.2008 19:23:05 / Jói B

Leikjamál!

Jæja þá er það komið á hreint að leiknum gegn 06.April hefur verið frestað þar sem við náðum ekki í hóp, þannig nú þarf að fara finna dagsetningu fyrir hann. Þannig næsti leikur hjá okkur er sunnudaginn á Humarhátið og verður hópurinn valinn seinna í þessari í viku, við ætllum ekki að hafa einhvern 30manna hóp. En reikna með því að næsta æfing sé á mánudag en hún verður auglýst hér síðar. Einnig væri fínt ef menn myndu sjá sér fært að leggja eins og 1000kr inn á Dýnamó reikningin því annars þurfum við að skrá okkur úr leik því við eigum enn eftir að borga keppnisgjaldið sem er 25.000, reik númerið er 1147-05-401330 og kennitalan er 510406-1330 endilega setjið nafnið ykkar í tilvísun. Takk takk

» 28 hafa sagt sína skoðun

25.06.2008 17:42:32 / Jói B

Æfing í kvöld - Leiknum frestað

Æfing í kvöld upp í Mánagarði strax eftir leik Tyrkja og Þjóðverja . Leiknum gegn UMFB hefur verið frestað því þeir komast ómögulega í dag. Þannig að næsti leikur er á næsta sunnudag á móti 06.April úti, en þeir töpuðu fyrsta leiknum sínum 4-1 þannig við erum í svipaðri stöðu og þeir eftir fyrsta leik.
Þeir sem hafa áhuga á því að koma með okkur í þann leik eru endilega beðnir um að commenta hér fyrir neðan og líka þeir sem sjá sér fært um að keyra.
Síðan erum við í viðræðum við Skinney Þinganes um boltakaup og gerist vonandi eitthvað í þeim málum í næstu viku. En ég hvet alla til að mæta í kvöld og sparka smá

» 29 hafa sagt sína skoðun

23.06.2008 18:28:13 / Jói B

Æfing í kvöld

Æfing í kvöld kl 20:00 upp í Mánagarði. Létt æfing og smá spjall um leikinn í gær og leikinn sem við eigum gegn UMFB á miðvikudaginn! Kemur eitthvað um leikinn í gær hérna inn á eftir


» 15 hafa sagt sína skoðun

20.06.2008 18:53:08 / Siffi Dúdda

Dynamo vs KR!

Sælir drengir.

Þá er alvaran að fara í gang,
Við eigum okkar fyrsta leik kl 18.00 á Reyðarfirði og þurfum að vera lagðir af stað frá höfn um 3 - 3.30.
Ég mun keyra einn bíl en við þurfum helst tvo í viðbót og jafnframt væri gott að geta haft 15 leikmenn með okkur i þennan leik.
Jói veit mikið meira um deildina en ég, enda með öll gögnin.
Við verðum í bandi við einhverja í kvöld en ef ykkur langar með þá getiði hringt í síma 8476635 (Ég) eða 8489117 (Jói) til að láta vita af ykkur.

Í gærkvöldi var dregið í Malarvinnslubikarnum. Sex lið eru skráð til keppni, Dynamó Höfn, UMF Þristur, UMF Borgarfjarðar, 06. apríl, Knattspyrnufélag Reyðarfjarðar og Boltafélag Norðfjarðar. Fyrsta umferðin fer fram á sunnudag.


 1. umferð sunnudagur 22. júní 18:00

KR-Dynamó Höfn

BN – 06. apríl

Þristur – UMFB

 

2. umferð miðvikudagur 25. júní 20:00

KR-06. apríl

BN-Þristur

Dynamó – UMFB

 

3. umferð sunnudagur 29. júní 18:00

Þristur – KR

BN - UMFB

06. april – Dynamó

 

4. umferð sunnudagur 6. júlí 18:00

06. apríl – Þristur

KR-UMFB

Dynamó – BN

 

5. umferð sunnudagu 13. júlí 18:00

BN-KR

Þristur – Dynamó

UMFB – 06. apríl

 

6. umferð sunnudagur 20. júlí 18:00

Dynamó – KR

06. apríl - BN

UMFB – Þristur

 

7. umferð sunnudagur 27. júlí 18:00

06. apríl – KR

Þristur – BN

UMFB – Dynamó

 

8. umferð miðvikudagur 30. júlí 20:00

KR – Þristur

UMFB - BN

Dynamó – 06. apríl

 

9. umferð sunnudagur 10. ágúst 18:00

Þristur – 06. apríl

UMFB – KR

BN – Dynamó

 

10. umferð sunnudagur 17. ágúst 18:00

KR – BN

Dynamó – Þristur

06. apríl - UMFB

(tekið af www.uia.is)


Þannig hér er þetta allt, eigum öll lið heima og úti og nú er ekkert annað í stöðunni en að byrja þetta á sigri í sunnudagin!

Takk!

» 4 hafa sagt sína skoðun

19.06.2008 22:54:10 / Jói B

Fyrsti leikur

Jæja drengir þá er komið að fyrsta leik í ár en hann er á NÆSTA sunnudag á Reyðarfirði. Þetta kom í ljós á fundi hjá ÚÍA í kvöld. Endilega commentið á þetta!

» 19 hafa sagt sína skoðun

18.06.2008 17:32:43 / Siffi Dúdda

Rísum úr rekkju!

Sælir drengir!

Það er æfing í kvöld hjá okkur kl 20:30 inní Mánagarði. Það er búið að skrá okkur og búið að redda öllu svo það er bara að kíla á það!
Hvað segiði þá, rífum þetta upp fyrir fullt og allt og tökum á.

Vill benda á að öll framlög á pening fyrir keppnisgjald er vel þegin.
Hlakka til að sjá flotta mætingu í kvöld
Takk.

» 23 hafa sagt sína skoðun

14.05.2008 11:49:55 / Siffi Dúdda

Æfing og próflestur!

Sælir drengir.

Hvað segiði þá, hvað finnst mönnum um æfingu í kvöld inní Mánagarði? Ég veit fyrir víst að margir eru að keppast í þessum prófum, sem og ég, en er ekki alltaf gott að fá smá útrás til þess að geta slakað á og lesið eftir æfingu? Ég er ekki frá því að allir hafi mjög gott af því og mæli ég eindregið með því að mæta í kvöld og fá útrás, láta þessar bækur vera í 2 tíma eða svo, hvað finnst ykkur um það?
Skulum mæta á æfingu í dag og hafa almennilega æfingu, ekki bara örfáar hræður, það er hundleiðinlegt!
Mætum og höfum gaman!

Kv. Stjórnin!

» 34 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 35
Heimsóknir
Í dag:  29  Alls: 247758
Könnun
Sætasti sigurinn?









Leitarbox